Færsluflokkur: Bloggar

...höfðingi kveður

 ...Sigurbjörn Einarsson biskup hafði rödd sem tekið var eftir...virðulegur höfðingi og andlegur trúarleiðtogi ...sálmaskáld og mannvinur

Minn Jesús, þinn frið vil ég finna,
þinn fögnuð og líf, sem ei dvín,
með þér vil ég vaka og vinna
og vitna um stórmerki þín.
En trú mín er blaktandi blossi,
þín brást ei, hún sigraði á krossi.
Ó, trú þú og vak vegna mín.

Sigurbjörn Einarsson, Sálmabók 360

...votta honum virðingu mína með ljóði úr hans eigin smiðju


...flug eða skip

...ferðalög með flugi frá eyjunni fögru setja mann oft í spennu...verður það flug eða Herjólfur... ??maður kíkir á fjallatoppana og þeir eru í dulmagnaðri þoku og það er hálftími í brottför Herjólfs...jú er ekki aðeins að rofa til ??? og svo er þessi spennuþrungna ákvörðun ..á að treysta veðrinu og það létti til og verði flug....eða skella sér í JollannSick... Pinch nei....ég tek flugiðSmile

Heartnjótið dagsins og góða helgi


mánudagur

...mér finnst sem mánudagur sé upphaf á einhverju spennandi og er algerlega óssmmála máltækinu "mánudagur til mæðu" ...ný vinnuvika og spurning hvað dagarnir gefa manni í fjársjóð lífsins. Einhver sagði mér að galdur lífsins væri að hafa alltaf eitthvað til að hlakka til og ég held að það sé nokkuð til í því

njótið dagsinsHeart

Dagarnir allir eyðast.
Alltaf er dauðinn jafnhress.
En láttu þér aldrei leiðast.
Lífið er ekki til þess.
Höfundur:
Úlfur Ragnarsson

"komment"

bloggsamfélagið býður upp á að fá komment, og til hvers? Öll viljum við fá viðbrögð við okkar hugmyndum og skoðunum. Lífið gengur út á samskipti. Samskipti manna í milli, samskipti við sinn innri mann og sumir eiga líka einhvern Guð sem þeir hafa samskipti við. Við viljum fá svör við okkar vangaveltum, álit hvort við erum að gera rétt, skiptast á skoðunum og víkka þannig út sjóndeildarhringinn. Þannig er lífið við viljum ekki vera ein, þó að stundum sé gott að vera í þögn einn með sjálfum sér.

Fólk sem er í erfiðleikum t.d. vegna missis  eða annars vanda er öðrum fremur nauðsyn að hafa einhvern til að eiga samskipti við. Þjáning tekur til allrar manneskjunnar, bæði líkama sál og anda. Brýnt er að fá tækifæri til að tala hreint út um allt sem hrjáir. Til þess þarf eyra sem hlustar og leyfir tilfinningum að flæða án þess að skera á með óviðeigandi athugasemdum, en það á einnig við með gleðinaHeart...því gleði fylgir löngun til að deila henni með öðrum............ InLove bloggsamfélagið og kommentin eru sennilega hluta af þessum mannlegu þörfum

Ástúð í andartaki.
Auga sem góðlega hlær.
Hlýja í handartaki.
Hjarta sem örar slær.
Höfundur:
Úlfur Ragnarsson

...þögn

...það er spurnig hvað ég á að gera með þetta blogg...mér finnst ég ekkert hafa að segja sem á erindi fyrir augu einhverra þarna úti .... kannski sem ég þekki og kannski sem ég þekki ekki. Líklega skiptir það engu máli  hver er að lesa bloggið manns, svo framarlega sem maður hefur ánægju af skrifunum sjálfur og er ekki að meiða aðrar manneskjur. En blogg-andinn er misupplagður til skrifa. Það er hægt að taka þátt í dægurþrasi líðandi stundar og "kommenta" á allt sem gerist. En í morgun fór ég að hugsa minn gang þegar ég sat við eldhúsborðið með dagblaða-hauginn ,,moggann, lesbókina, 24stundir, fréttablaðið, allt-blaðið" og hvað þetta heitir....þar að auki var útvarpið í gangi, tölvan var opin með MSN (ef einhver skyldi nú vera á línunni)..... hvernig það væri að hafa formlega þögn..!!! eins og ég man í gamla daga þegar Jón Múli var á gömlu gufunni og dagskráin varð eitthvað á undan áætlun, þá sagði Múlinn:  .... "nú verður þögn í 10 mínútur"   það er stundum gott að hafa bara þögnKissing

góðar stundirHeart


...umhugsunarvert

hvað það þýðir ..."að láta verkin tala"... ....eins og fráfarandi borgarstjóri hefur marg stagglast á.Blush


mbl.is Samstarfið á „endastað"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...pæling

...annað hvort verð ég að fara að hætta með þessa bloggsíðu eða taka mig á og sinna henni af einhverjum metnaði.......það er spurning dagsinsWoundering


..af hverju...

InLove..litlu frænkur mínar eru náttla yndislegar ... það voru mörg "af hverju" sem þurfti að svara og sú minnsta sem er 20 mánaða er að byrja að tala ...kallar flott á systur sínar....Haaappppa!!!! (Harpa) og Addddna (Arna)...og það er tómlegt í húsinu þegar þær eru farnar..Kissing


...heimsókn

..er að fá fjórar frænkur úr sveitinni í heimsókn.. er full af tilhlökkun að fá líf í húsið mitt...Heart

..allt að koma

...vei veii....ég fann bloggvini mína aftur ... InLove

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ljósið kemur

Höfundur

Guðný Bjarna
Guðný Bjarna

hvernig væri umhorfs ef ekkert væri ljósið ?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 590

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • IMG_0292
  • ..._024_747563
  • Lóa 11-12 vikna 024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband