Færsluflokkur: Bloggar
20.9.2008 | 01:20
...mænan er ráðgáta
...eftir að hafa fylgst með söfnunarþættinum í kvöld fylltist ég stolti yfir hve landinn er duglegur að gefa til slíkra verka, en allra mest fyllist ég lotningu fyrir þessu æðuleysi sem maður sá hjá fólkinu sem hafði lent í mænuskaðanum....... þar fyrir utan var hugmyndin um að senda þáttinn út frá Laugum WorldClass skemmtileg tilbreyting...... en maður á svo fátt til að segja við örlögum fólks sem lendir í mænuskaða en...
Set hér ljóð sem ég elska eftir lýlátinn höfðingja:
Dag í senn, eitt andartak í einu, Hann, sem er mér allar stundir nærri, Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum Sandell-Berg - Sigurbjörn Einarsson Eigið góða helgi | 12425 | |||
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2008 | 09:37
..heil en marin
..já ég er komin úr réttunum í heilu lagi, reyndar með nokkra marbletti eftir beitt horn sem eiga til að stingast inn í lærin, en hvað er það þó maður hafi fjólublá og skrautleg læri nokkra daga... réttir eru sambland af svo mörgu, þar eru heilu ættarmótin og vinafundirnir, þar er afkvæmasýning ..þó sérstaklega á mannabörnum... reyndar er sauðkindin í aðalhlutverki ennþá, an án hennar eru engar réttir..... en þegar tveggja hæða fjárflutningabíll mætti á staðinn og inn í hann hurfu hundruð kinda fannst mér ég fyllast fortíðarþrá... en svona er lífið... nýjungar birtast á flestum sviðum
eigið góðan dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.9.2008 | 12:05
...í faðm fortíðar
..já ég er að fara í sveitina mína og upplifa réttirnar eina ferðina enn... ég elska að komast í sveitakyrrðina og náttúruna þar sem ég eyddi mínum æskudögum... rollurnar að koma úr frelsinu á fjöllum með væna dilka og fólk í stígvélum að raga í féinu og rýna í mörk og skilti, eldri að kenna þeim yngri hvernig á að bera sig til við að koma fé í dilk... já og dyravarslan í dilknum er ábyrgðarstaða þar sem aðeins rétt fé má fá inngöngu.... og upp á réttarveggnum situr yngsta kynslóðin (undir vökulu auga umhyggjunnar) og drekkur í sig stemminguna ...sem reyndar er misjafnlega meðtekin...einstaka tár og hræðslutaktar sýna sig ..en kjarkurinn vex við áframhaldandi uppörfun reynslu unganna...já þetta verður góða helgi í mínu lífi
megi lesendur mínir eiga góða helgi hvar sem þeirra spor liggja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.9.2008 | 09:41
...klukkuð
Fjögur störf sem ég hef unnið um Ævina:
Ræstitæknir á spítala
Starfsstúlka á Hóteli (gengilbeina)
Aðstoðarpía á elliheimili í Englandi
Þvottakona í sláturhúsi. Og svo hin störfin sem allir vita um
Fjórar bíómyndir sem ég held uppá ;
Man yfirleitt ekki nöfn á bíómyndum en..
Mýrin var góð
Með allt á hreinu ...er minnisstæð
Grenjumyndir um mannleg örlög..snerta mig
Fjórir staðir sem ég hef búið á;
Sveitin mín ..Kjalvararstaðir
Reykjavík
Kópavogur
Garðabær...og fleiri
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
...horfi sjaldan á þætti en helst
Sakamálþættir allskonar eins og CSI
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum;
Filippseyjar
Danmörk
Slóvenía
Ítalía og fl.
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg;
visir.is
mbl.is
ljosmodir.is
eyjar.net
Fernt sem ég held uppá matarkyns:
lambakjöt
grilluð lúða
humar
flestur fiskur
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Biblían
Leitin að tilgangi lífsins eftir Viktor E Frankl
Gæfuspor
ljóðabækur t.d. Steinn Steinar,Tómas Guðm. og Davíð Stef ofl
Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka;
Abraham
ÁgústaG
Ásdís frænka
Nkosi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.9.2008 | 20:19
...buddu-pæling
...já ég elska buddur, enda á ég buddur af öllum gerðum og stærðum ...og er orðin fræg fyrir þetta buddu-æði á ferðalögum t.d. í gönguklúbbnum mínum...eina fyrir fjalladótið sem er höfð í bakpokanum...eina fyrir fjallaskálann þegar komið er úr göngunni..eina fyrir sjúkradótið og eina fyrir loka sturtuna...svo er einhverstaðar budda fyrir peninginn (seðlana) ef einhversstaðar skyldi vera komið við í búð...þetta er samt bara hluti af þessu budduveseni hjá mér þegar ég fer eitthvað á flakk ..en vandamálið er að ég finn aldrei neitt í öllum þessum buddum ...sem samt eru fullar af einhverju skemmtilegu.
....en í daglega lífinu nota ég ekki buddur... heldur er ég með forláta seðlaveski ...en vandinn við þetta seðlaveski er að þar eru aldrei neinir seðlar bara plastkort og kassakvittanir... þannig að heiti á þessu veski er auðvitað alveg út í hött... þar er alltaf tómt tjón og eintómar skuldir...spurning um að fara að nota ferðalaga-buddurnar í daglega lífinu mínu og henda seðlaveskinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.9.2008 | 22:02
...misjöfn túlkun
Er glasið hálf fullt...eða hálf tómt.....???
...þegar stjórnarandstæðingar gangnrýna stjórnun efnahagsmála segir forsætisráðherrann að það sé alls ekki svo slæmt, en þegar leiðrétta á laun ljósmæðra segir sá sami að erfitt sé að verða við því vegna erfiðleika í efnahagsmálunum... er ekki eitthvað klysjukennt við þetta ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2008 | 14:15
innlegg í kjarabaráttu ljósmæðra
Erfið fæðing á sér stað:
einbeitt launakrafa'er það
þungaðar við erum allar
engin miskunn þörfin kallar
í burðarliðnum barnið er
bíður þess að fæðast hér
Yfir hundrað merkur mælist
meira hvað þeim fyrir þvælist
tökin því að taka' á móti
til að krafan fylgis njóti
öðlist líf sem lífið bætir
ljósmæður og aðra kætir
Þéttingsföstum þrýsting beitum
þreifum eftir kennileitum
uns hún fæðist feit og góð
frísk og sterk og þolinmóð
krafan um að auratal
okkar þörfum nægja skal
Fyrstu andvörp einmitt núna
efla styrkja kraftinn trúna
eldheitt blóð um æðar rennur
innst í hjarta glóðin brennur
kjaranefnd og kvennaher
í Karphús og á þingið fer
Hríðastormur stendur yfir
sterk og öflug hugsjón lifir:
leiðrétting á launakjörum
lífið er á sjúkrabörum
fósturhljóðin heyrast vel
hér þótt súpum dauða' úr skel
Ljóssins mæður margir styðja
meðan þær um áheyrn birðja
svo að góður sigur náist
sanngjörn laun og virðing fáist
fyrir klárar kvennastéttir
hvað það verður mikill léttir !!!!
ort 04.09.08 Þórdís Klara Ágústsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.9.2008 | 13:32
...hlýnun ljóssins !
..stuðningur við kjarabaráttuna hefur valdið hlýnun í tilfinningaskalanum hjá "ljósinu"
...takk allir sem hugsa jákvætt til ljósmæðra og hafa stutt okkur á einhvern hátt og vonandi verður allur þessi jákvæði meðbyr til þess að deilan leysist sem allra fyrst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.9.2008 | 23:33
...verkfall
...já við jósmæður erum að fara í verkfall, samningarnefnd LMFÍ og ríkisins hafa átt árangurslausa samningafundi og ekkert miðar í samkomulags átt þrátt fyrir að ríkisstjórnarsáttmálinn sé skýr, en þar segir m.a.
Jafnrétti í reynd
Gerð verði áætlun um að minnka óútskýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu og stefnt að því að hann minnki um helming fyrir lok kjörtímabilsins. Ríkisstjórnin vill koma á samvinnu aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera um að leita leiða til að eyða þessum launamun á almennum vinnumarkaði. Endurmeta ber sérstaklega kjör kvenna hjá hinu opinbera, einkum þeirra stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta. Stefnt skal að því að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og stjórnunarstöðum á vegum ríkisins. Tryggður verði réttur launafólks til að skýra frá launakjörum sínum ef það svo kýs. Trúfélögum verði veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra.Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar 2007
Þetta er stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undirrituð á Þingvöllum þann 23 maí 2007 ...eru svona plögg bara skraut...?
....samninganefnd ríkisins hefur greinilega ekki umboð til að klára málin heldur verður alþingi að koma að. Fámenn kvennastétt sem hefur í mörg, mörg, mörg ár verið með sömu áherslunar í kjaramálum og ekki haft árangur sem erfiði er orðin langþreytt. Auknar menntunarkröfur hafa ekki skilað stéttinni betri afkomu. Nú er mælirinn fullur og einhugur er hjá stéttinni að standa saman um bætt kjör
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.8.2008 | 18:06
bara flott
Nýr forstjóri LSH til starfa 10. október | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Ljósið kemur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar