..ekki dauð

Kissingljósan er ekki dauð ....nei hún er sprellifandi og stundar nú atvinnu í tveimur löndum..eða næstum því..... fólk sem enn nennir að stunda heimaleikfimi með opinberum árangriInLove .....nýtur starfskrafta hennar á 101 svæðinu og líka á 900 svæðinu.... henni finnst alltaf jafn skemmtilegt að þjóna slíkum kúnnum...svo hefur tölvufiktið fleytt henni inn á fésbókina og á þar orðið hóp af vinum... já það er bara mikið að gera.... og Lóa litla papillontíkin mín er hálfs árs eftir 2 daga ...hún er að verða 9 merkur og kann orðið að ganga fallega í taumi og sitja pen...og fá nammi fyrirSmile

Heartlifið heil og njótið dagsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Lóa litla 9 merkur fyndið..... veit ekki hvað Ylfa mín er orðin margar merkur  en hún kann nokkur trix en hún er ekki góð að ganga í taumi dregur okkur áfram...... við erum áhangendur.  Styttist í að árangur heimaleikfimi sonarins opinberist ég er orðin of spennt ......er ekki eins viss með kynið og oft áður var alveg viss með Ísak Elí ...sá óvart í sónar hvort kynið var með Ingimar Óla en foreldrarnir vildu ekki vita og María var búin að segja mér að það væri að koma strákur..... það var okkar leyndó .....sá svo fallega drenginn hennar í þrívídd með þeim.....það er jafnerfitt að bíða.... og var að bíða eftir jólunum í den.....en ég er bara glöð meðan allir eru hraustir og hressir...ekkert sjálfgefið í þeim málum...þakklát meðan svo er.....6o dagar....kveðja 

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 11.3.2009 kl. 14:28

2 Smámynd: Guðný Bjarna

 Ragna ...takk fyrir innlitið...ég er reglulegur gestur hjá Búkollu þó ég fari hljótt um

Hjördís...hún Lóa litla er reyndar ekki alltaf flott  í taumi...hún hefur mikinn áhuga á trjástofnum...en þeir lykta alveg dásamlega að hennar mati...og hún þessi litla písl er farin að skilja eftir sína lykt í þessu lyktarsafni...og lyftir litlu afturlöppinni svo flott eins og hún sé úlfhundur..... og togar og togar í bandið þannig að gamla hefur fullt í fangi

já opinberun heimaleikfiminnar gefur lífinu yndislegt innihald...skil vel þennan spenning hjá kristalkrónunni kveðja

Guðný Bjarna, 11.3.2009 kl. 19:48

3 Smámynd:

Elsku Guðný mín - ertu bara að vinna á gamla staðnum. Hvað kom til að þú fékkst það? Bákninu hefur nú hingað til ekki hugnast að maður sé margskiptur  En það er gott að vita af þér að sinna gamla "kúnnahópnum" mínum. Hjartans kveðjur til allra þar

, 11.3.2009 kl. 20:53

4 Smámynd: Guðný Bjarna

...ójá Dagný mín...ég er komin á gamlar slóðir...þrjár vikur í kjallaranum og eina viku á eyjunni góðu...maður veit aldrei sína æfi fyrirfram..eða þannig..

 knús austur fyrir fjall

Guðný Bjarna, 11.3.2009 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ljósið kemur

Höfundur

Guðný Bjarna
Guðný Bjarna

hvernig væri umhorfs ef ekkert væri ljósið ?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_0292
  • ..._024_747563
  • Lóa 11-12 vikna 024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband