15.3.2009 | 21:03
dótakassinn og raunveruleikinn
...ég fékk tæplega tveggja ára frænda minn í heimsókn í dag.....hann lék sér með tvö cerios í gröfuleik....burrrrrr og setti kornin í skófluna...keyrði og sturtaði...og sófaborðið varö að gröfubraut þar sem miklar framkvæmdir voru í gangi...og ceriosið sturtaðist og var tekið upp aftur og aftur....og fyrir rest þegar leiknum lauk ...voru cerioskornin borðuð...og litli frændi minn var sigri hrósandi og glaður yfir þessu umhverfisvæna dóti.... hjá frænkunni...
....svo leit ég í DV helgarinnar og sá þar umfjöllun um dótakassa í eigu svokallaðs útrásarvíkings .....þar voru "leikföng" sem voru milljarðavirði.... en engar lýsingar um gleðina yfir þessu dóti
Um bloggið
Ljósið kemur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Dýra dótið veldur bara óhamingju á meðan hið smáa í lífinu getur vakið ómælda gleði og og verið uppspretta merkilegra hugmynda og uppgötvana
, 15.3.2009 kl. 23:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.