...allt í rugli

...moggabloggsíðan er orðin rauð og allir  bloggvinir eru horfnir ...sem sagt allt í rugli... og ég er að fara upp á land, en ekki á þjóðhátíð.... já hvað er í gangi...  það er líka allt í rugli ..eða þannig... ég fer ekki í Veltusundið í tjöldunina þar sem ég verð að mannýgu nauti sem blótar og baular á besta fólk til að verja mitt svæði .... þar sem ég og mínfjölskyldahefurtjaldaðsvolengisemelstumennmunaoglengurenþað þá er eins gott að vera fjarri og forða sér á fasta landið... karlinn er að vinna og ekki von á neinum gestum svo ég fer ekki að berjast um og tryllast yfir landsvæðinu í Veltusundinu þetta árið til að vera ein í tjaldinu...þó ég eigi efri skápa og græna búslóð frá því úr fornöld... og til að gera langa sögu stutta eyði ég helginni í borg óttans að sýsla með ný borgarljós og eigendur þeirra (fæðandi konur og nýfædd börn) og gott ef ég verð ekki líka að sýsla með einhver verkefni sem tengjast hinni vinnunni minni ..sem ég byrjaði í á þessu ári.. verkefnin eru næg... en ég óska þjóðhátíðargestum gleðilegrar hátíðar og ekki halda að endurkoma mín í Veltusund sé liðin undir lok... því ég kem alltaf aftur og aftur og aftur ..eins og Marteinn Mosdal forðumSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Inga Arnarsdóttir

Þú verður nú samt að fara að merkja þér stæði skilja svo spottann eftir og allir bíða eftir þér ekki láta neinn gleyma að þetta er þitt stæði. Ég hef prófað ýmislegt við að reyna tryggja mér stæði fyrirfram sumt hefur virkað annað ekki  en er svo sem bara ligeglad hvar ég lendi en ég er alltaf  á neðralandinu kær kveðja

Hjördís Inga Arnarsdóttir, 30.7.2008 kl. 11:01

2 Smámynd: Erla Björk Jónsdóttir

Æ þú ert yndisleg  Hafðu það gott í borginni. Kær kveðja. Erla.

Erla Björk Jónsdóttir, 30.7.2008 kl. 13:33

3 Smámynd: Guðný Bjarna

takk fyrir innlitið stelpur...

HIA...vonandi verður húrrahróp og læti þegar ég mæti næst með spottann í Veltusundið... gleðihróp og fagnaðarfundir á landareigninni

Guðný Bjarna, 30.7.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ljósið kemur

Höfundur

Guðný Bjarna
Guðný Bjarna

hvernig væri umhorfs ef ekkert væri ljósið ?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 590

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • IMG_0292
  • ..._024_747563
  • Lóa 11-12 vikna 024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband