10.7.2008 | 23:52
...varið ykkur !!
...konan er farin að hjóla á sínu fína hjóli...brunar í vinnuna niðrí móti... en verður svo að púla fyrir heimferðinni... ég verð að viðurkenna að það er eins og lærvöðvarnir hafi verið í orlofi árum saman og jafnvægislistin er frekar fumstæð ..því á hverjum gatnamótum er beðið til almættis og allra góðra vætta að enginn bíll sé í nálægð... já maður sér tilveruna öðuvísi á hjólinu og þolir ekki þessa ökufanta sem trylla fram hjá hjólreiðamanninum með bláan reykinn úr púströrinu... ..mér fannst hjálmurinn alveg hræðilega púkalegt tískuslys til að byrja með...en nú finnst mér hann bara töff
Um bloggið
Ljósið kemur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 590
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Farðu varlega Guðný mín. Ég ákvað nefnilega líka í dag að prófa hjólið mitt og sjá; hélt "kallinn" minn kynni þetta ekki og ákvað að kikja aftur og segja honum að passa sig á bílunum,... nema hvað lít fram aftur og *búmmmmm* gangstéttin fyrir framan mig og ég beint jörðina! En var heppin,. bara skrámur thank God.!
Ég hefði kannski betur átt að sleppa því að skipta mér af þessum fyrir aftan ... hehehe!!!!
En hjól er allra meina bót, og áður en við vitum af erum við orðnar stinnar frá a-ö held ég!!! hehehe knús og kvitt
G Antonia, 11.7.2008 kl. 02:53
Frábært að sjá hvað margir eru farnir að hjóla! Mágkona mín,Lena pena fékk hjól í afmælisgjöf frá fjölskyldunni og ætlar að fara að hjóla í vinnuna.Guttormur hennar Búkollu hefur hjólað í vinnuna í mörg ár fannst oft erfitt heim en fer þetta með leik núna.Ég hef ekki hjólað síðan í Hollandi á síðstu öld!!!!!En þá hjóluðum við fjölskyldan um allt og mamma mín og pabbi líka bara skemmtilegt.Kveðja
Hjördís Inga Arnarsdóttir, 11.7.2008 kl. 08:52
..já stelpur G Antonia og HIA ... hjólamenningin er kannski pínu óljós bæði í þjóðarsálinni og ekki síður hjá einstaklingunum.... við mættum kannski taka nágranna okkar Dani til fyrirmyndar... þar er amk mikið af stinnum hjólavöðvum
Guðný Bjarna, 11.7.2008 kl. 08:57
Já ég sá þig á hjólinu um daginn og mér fannst þú mjög tígulleg á hjólinu. Ekki nóg með það ég öfundaði þig líka. Kannski ég ætti að láta gamlan draum rætast. Það er líka hægt að skýla sig með háu bensínverði. En þess þarf ekki í dag. Þetta er orðin svo mikil heilsuEYJA... Njóttu vel í logninu.
Ágústa Guðnad. (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 01:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.