27.3.2008 | 13:52
...fortíðar...
... þegar ég kom heim úr morgunstörfunum beið mogginn... hentist í gegnum hann eins og vanter... staldraði aðeins við minningargreinasíðuna og sá að óvenju langur inngangur var um eina fullorðna konu fædda "21.... rýndi betur í ættfæðina... og sá að þarna var að kveðja eiginkona frumkvöðulsins sem stofnaði Hagkaup........ á augabragði skaust ég aftur í fortíðina og er orðin unglingur upp í sveit... alltaf sami spenningurinn þegar pósturinn kemur með mjólurbílnum.... já nú er eitthvað nýtt á ferð og það er myndabæklingur í póstinum sem sýnir vörur af ýmsu tagi, allt frá nálaþræðara og til hljóðfæra......og það er hægt að kaupa vöruna sem er á myndunum...... það er mikið skoðað og pælt og það er pantað ... sent með mjólkurbílnum eftir nokkra daga í umslagi með frímerki....... og eftir dágóðan tíma kemur pakki....auðvitað með mjólkurbílnum...... og unglingurinn í sveitinni á orðið gítar
.... þessi myndabæklingur fór víst inn á flest íslensk heimili og ef mig minnir rétt ...varð bylting í einkennisbúningi íslenskra húsmæðra í kjölfarið.... þær hentu svuntunum og klæddust í staðinn hinum margrómuðu "hagkaups sloppum"... já fjölskylda konunnar sem var minnst í mogganum í dag hefur haft áhrif á margt í lífi íslendinga......
Um bloggið
Ljósið kemur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hagkaup opnaði verslun í Eyjum. Ég eignaðist rósóttar gallabuxur, mamma fékk sér Hagkaups-slopp, voða fínan. En gítarinn var keyptur í Verslun Haraldar Eiríkssonar, fyrir barnapíulaunin og stóð alveg fyrir sínu þar til fjárfest var í Hagström. Það er gott að minnast liðinna daga svona í upphafi vinnudags Bestu kveðjur frá Selfossi
Guðný Ingvars (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 08:49
...takk fyrir innlitið nafna ...við Hagkaups-gítarinn minn áttum góða daga saman og héldum víða uppi fjöri í blómabarnapartýum í anda Bítla, Stones, Dylan og að ógleymdum ættjarðartónlistar.... en svo týndist gítarinn og ekki hefur til hans spurst í á fjórða áratug.... og gítarhæfileikinn týndist líka
Guðný Bjarna, 28.3.2008 kl. 09:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.